[byrja upp á nýtt]
---SLATA - KONA EÐUR GOÐSÖGN?--- .


23.8.05
Pungur

Faersla sem eg skrifadi svona thremur dogum adur en eg for ut er her fyrir nedan.

Sidan vil eg byrja a ad nefna keppni, hun er thannig ad sa sem sendir mer fyrst bref faer verdlaun. Heimilisfang:

Nefelejcs utca 16
8OOO Székesfehérvár
Ungverjaland

Ferdalagid gekk ofurvel, vid komum vid i Kaupmannahofn, thar var ofgastud ad venju, vid gengum nidur strikid, fengum okkur kebab og keyptum "helstu naudsynjar" i H og M. Svo var orientation i Buda-haedum, adur en vid forum i budirnar var okkur synt utsynid yfir Budapest fra einni haedinni tharna. Budapest er otrulega falleg borg. Vona ad eg heimsaeki hana bradum thar sem mer synist brodirinn og vinir hans ekki vera a leidinni thangad. Eg for sidan a pöbbinn fyrsta kvöldid og i gaer for pabbinn med mig i skodunarferd um nagrennid, syndi mer otrulega mörg minnismerki um misheppnadar byltingar. Eg sa fra einu theirra yfir Velence-vatn, sem er nokkra kilometra fra. A morgun er ferdinni heitid ad Balatonvatni og vid verdum vist thar fram a föstudag, thvi tha er einhver afs-ferd eda samkoma. Mer hefur strax verid bodid i afmaeli, ansi langt fram i timann (manudur thangad til). Eg hitti ömmuna i gaer, hun er ogedslegt krutt. Thad er perutre i gardinum hennar og lika okkar. Eg hef bordad perur i morgunmat sidustu daga. Thad eru tveir hundar og fimm kettir a heimilinu. Fjorir kattanna eru asnalegir kettlingar. Hundarnir eru ljos og svartur labrador sem heita Cleo og Gloria. Öll dyrin eru uti. Herbergid mitt er bleikt med bleikri rönd. Eg skelli skuldinni a Haki fra Hong Kong sem atti heima thar a undan mer. Eg er nuna heima hja vini krakkanna (ekki net heima hja mer), sem er med pinna i augabruninni. Pabbinn er lodinn a nefinu. OFAN a nefinu. Eg hef enn ekki fundid almennilegan Béla til ad kela vid. Eg er hins vegar buin ad tala dönsku tvisvar, heima hja mer. Vid tvo mismunandi. Skolinn byrjar 3. september, daginn eftir ad brodirinn fer til Ekvador. Systirin er med mer i skola og lika vinkona hennar sem baud mer i afmaelid sitt. Nu er foturinn a mer daudur svo eg kved i bili. Minni a brefasendingakeppnina. Eg er enn ekki byrjud a lakkrispokunum tveimur sem ég tok med mer. Thad ma undrun saeta. Eg er ordin rosa god i ungversku, kann ad telja upp ad tuttuguogniu og allt. Eg taladi lika vid ömmuna, hun vard glöd og gaf mer konfekt. Eg er ekki enn byrjud a thvi heldur. Nei, nu er thad bara leves og pörkölt a diskinn minn.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 12:09



Skrifad fyrir longu

Nú hef ég töluvert umgangast fólk sem talar um hva? ?a? er stutt í skólann, og í
hva?a bekk ?a? ver?ur, og mér finnst ?a? býsna einkennilegt, ?ví ?a? er bara
vika sí?an ég komst a? ?ví í hva?a skóla ég ver? í vetur. En ?a? er ýmislegt
h?gt a? gera til a? undirbúa sig fyrir langa dvöl í útlöndum. D?mi:

- Fara í klippingu og litun. Í ?eim
erindagjör?um fór ég á hárgrei?slustofuna Pönk í Laugum. Ég var örlíti? smeyk um
a? ?ar v?ri meira lagt upp úr ?ví a? gera en geta, en svo miki? var nú ekki
pönki?. Starfsli?i? kalla?i mig elskuna sína og fr?ddi mig um hringrás. Saman
komumst vi? a? ?eirri ni?urstö?u a? ?a? v?ri tóm fljótf?rni a? vera eitthva? a?
klippa mig. Ég gekk út ólitu? og óklippt. Pönk.

- ?iggja gjafir. Ég hef hloti?
eftirfarandi gjafir:
  • Reisubók Gu?rí?ar Símonardóttur, sem fór til útlanda ?ar sem
    allir voru mjög vondir vi? hana. Hún dó svo.
  • Lykla a? ?skuheimili
    Sögu Gar?arsdóttur.
  • Dularfullur pakki. Magnús bró?ur minn grunar
    a? pakkinn innihaldi pítsu.
  • Bók um kúbisma sem var látin morkna uppi
    á skáp hjá Herdísi sí?an ég var á Kúbu um páskana. Ekki grín. Bókin var prý?ileg
    ?rátt fyrir ?a?, takk Halla, Herdís og Saga.
  • Skrín me? súkkula?i,
    brúnkuklúti og sprautu. Sprautan var svo ég g?ti sprauta? vatni e?a eiturlyfjum,
    fór eftir ?ví hvern ég spur?i.

- Fara til l?knis og láta yfirfara sig.
Fyrir mánu?i sí?an veiktist mamma og ?tla?i a? panta tíma hjá l?kni. N?sti lausi
tíminn var í g?r, en mánu?ur er nú eiginlega nógu langur tími til a? anna?hvort
hafi sjúklingnum batna? e?a hann dái?. ?ó var ákve?i? a? panta tíma upp á von og
óvon, ef einhver skyldi veikjast n?sta mánu?inn. ?a? fór sem betur fer ekki svo,
en t?kif?ri? var nota? til a? athuga hvort ég v?ri ekki bara hress. Ég sýndi
l?kninum f??ingarblett, hann var bara hress, svo til a? fara ekki tómhent frá
l?kninum ba? ég um sprautu. Hana fékk ég, og nú er tryggt a? ég fái ekki
lifrarbólgu n?sta áratuginn e?a svo. Ég er efni í sprautufíkil.

- Fara í gufuba?. Á laugardagsmorgun fór
ég í gufu í Flú?alaug. ?a? var alveg yndislegt. ?ar tengdist ég minni innri konu
nánum böndum, hreinsa?i áruna og kom jafnv?gi á innl?gt streymi mitt. ?a? var
?rungin stund. Ég hef nú ö?last mikla ró og sátt og er mjög n?m. Enda
listama?ur. Svo fór ég á?an í gufu í Laugardalslaug. ?a? var nú meira r?kalls víti?.

- Endurskipuleggja herbergi? sitt samkv?mt Feng
Shui-fr??um.
?a? er ljóst a? ég ver? a? gera rá?stafanir til a? neikv?tt
fl??i og dau? orka hrannist ekki upp inni hjá mér í fjarveru minni. ?a? v?ri
nefnilega ferlegt.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 12:09



5.8.05
Haha!

Nú hef ég töluvert umgangast fólk sem talar um hvað það er stutt í skólann, og í
hvaða bekk það verður, og mér finnst það býsna einkennilegt, því það er bara
vika síðan ég komst að því í hvaða skóla ég verð í vetur. En það er ýmislegt
hægt að gera til að undirbúa sig fyrir langa dvöl í útlöndum. Dæmi:

- Fara í klippingu og litun. Í þeim
erindagjörðum fór ég á hárgreiðslustofuna Pönk í Laugum. Ég var örlítið smeyk um
að þar væri meira lagt upp úr því að gera en geta, en svo mikið var nú ekki
pönkið. Starfsliðið kallaði mig elskuna sína og fræddi mig um hringrás. Saman
komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri tóm fljótfærni að vera eitthvað að
klippa mig. Ég gekk út ólituð og óklippt. Pönk.

- Þiggja gjafir. Ég hef hlotið
eftirfarandi gjafir:
  • Reisubók Guðríðar Símonardóttur, sem fór til útlanda þar sem
    allir voru mjög vondir við hana. Hún dó svo.
  • Lykla að æskuheimili
    Sögu Garðarsdóttur.
  • Dularfullur pakki. Magnús bróður minn grunar
    að pakkinn innihaldi pítsu.
  • Bók um kúbisma sem var látin morkna uppi
    á skáp hjá Herdísi síðan ég var á Kúbu um páskana. Ekki grín. Bókin var prýðileg
    þrátt fyrir það, takk Halla, Herdís og Saga.
  • Skrín með súkkulaði,
    brúnkuklúti og sprautu. Sprautan var svo ég gæti sprautað vatni eða eiturlyfjum,
    fór eftir því hvern ég spurði.

- Fara til læknis og láta yfirfara sig.
Fyrir mánuði síðan veiktist mamma og ætlaði að panta tíma hjá lækni. Næsti lausi
tíminn var í gær, en mánuður er nú eiginlega nógu langur tími til að annaðhvort
hafi sjúklingnum batnað eða hann dáið. Þó var ákveðið að panta tíma upp á von og
óvon, ef einhver skyldi veikjast næsta mánuðinn. Það fór sem betur fer ekki svo,
en tækifærið var notað til að athuga hvort ég væri ekki bara hress. Ég sýndi
lækninum fæðingarblett, hann var bara hress, svo til að fara ekki tómhent frá
lækninum bað ég um sprautu. Hana fékk ég, og nú er tryggt að ég fái ekki
lifrarbólgu næsta áratuginn eða svo. Ég er efni í sprautufíkil.

- Fara í gufubað. Á laugardagsmorgun fór
ég í gufu í Flúðalaug. Það var alveg yndislegt. Þar tengdist ég minni innri konu
nánum böndum, hreinsaði áruna og kom jafnvægi á innlægt streymi mitt. Það var
þrungin stund. Ég hef nú öðlast mikla ró og sátt og er mjög næm. Enda
listamaður. Svo fór ég áðan í gufu í Laugardalslaug. Það var nú meira rækalls vítið.

- Endurskipuleggja herbergið sitt samkvæmt Feng
Shui-fræðum.
Það er ljóst að ég verð að gera ráðstafanir til að neikvætt
flæði og dauð orka hrannist ekki upp inni hjá mér í fjarveru minni. Það væri
nefnilega ferlegt.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 13:02



Wir tanzen im Viereck

Í dag á mamma mín afmæli, hún er á Siglufirði þar sem allir eru með yfirvaraskegg. Saga á afmæli á morgun, Saga er í Reykjavík. Um síðustu helgi fór ég á Innipúkann, þar var gaman, ég varð skotin í þremur, a) Stráknum sem var að borða jógúrt, b) Stráknum sem missti húfuna sína, c) Stráknum sem spilaði á gítar með Raveonettes. Raveonettes eru sæt og kúl. Ógeðslega reykingalyktin sem náði inn að beini eftir bæði kvöldin var hins vegar hvorki sæt né kúl. Vinnufélagi minn er að leika 12 ára strák sem grenjar því hann þarf að velja fötin sín sjálfur. Sjálf var ég að enda við að segja vinnuveitanda mínum að ég ætli að halda eiturlyfjapartí um helgina. Nú er hann að syngja Meatloaf-syrpu. Ég frétti að það ætti að halda Prince-hermitónleika og fór strax að velta fyrir mér hver hermikrákan ætti að vera. Mér datt strax í hug Geir Ólafsson og hló alla leiðina heim. Þetta er mikil stuðsíða. Hendurnar á mér eru svo skrýtnar á litinn. Þegar ég er búin í vinnunni ætla ég að kaupa mér svart tjull og sauma úr því pils. Þá verð ég Ballerína Dauðans. Það verður sérstaklega skemmtilegt.

Eins mikil sögufölsun og það er að breyta færslum eftir á, finn ég mig knúna til að bæta því við að hendurnar á mér eru núna orðnar köflóttar. Með appelsínugulum doppum, sem ég tengi einhverra hluta vegna við einhverja laxaveiki. Og þær eru köflóttar. Ekki grín.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 13:02

maystar maystar maystar designs | maystar designs |