[byrja upp á nýtt]
---SLATA - KONA EÐUR GOÐSÖGN?--- .


24.5.04
Ha, barað verða soldið múruð Sigrún, ha Sigrún?

Fortíð: Próf, tilheyrandi Íþökuseta og gleði. Því næst tjaldað á Selfossi, sem varð að polli á einni nóttu í tilefni af komu okkar. Þar réði því ríkjum almennur sviti og tveir af hverjum þremur sem lögðu af stað úr bænum á föstudagi voru flúnir þangað aftur þegar laugardagur reis. En ég hafði tússliti og gifshulinn handlegg dýrbítsins Sölva, gúmmístígvél, lakkrís og þrjá hrausta karla sem sungu slagara frá árinu 2000 og léku svefnpokalirfur af hjartans lyst - svo ég þraukaði. (Nákvæmari ferðasaga á Hildarsíðu.)
Afmæli hjá Sölva áðan og í kjölfarið fengum við Vala far heim hjá Ómar. Það teygðist í ævintýraferð um borgarhluta sem ég hef aldrei áður barið augum; vöruhótel við sjóinn sem ég hreifst af, og vitar sem ég ætla að búa í. Rallý í Heiðmörk og skoðunarferð um Hafnarfjörð, þar sem margt bar fyrir augu; hóla sem eitthvað óhreint virtist búa í, bíla fulla af öpum - og á meðan hlustuðum við á Espanjólaspóluna, Kraftwerk og einhvern gaur sem heitir Rolf.
Nútíð: Hvernig getur verið nútíð þegar fortíðin og framtíðin hljóta að sameinast á sama augnablikinu? Nei grín, vekjaraklukkan hennar mömmu er að hringja og ég ætti eiginlega virkilega að fara að sofa. Bráðum.
Framtíð: Fá að láni manga manga geisladiska. Ríða svo mót austri, taka upp gulrót og aðra, standa uppi í stafni í nýja pollagallanum mínum og svona. Fínpússa finnskuna mína, sænskuna og búlgörskuna milli þess sem ég slít tengsl hvers kálhaussins á fætur öðrum við móður jörð. Síðan, þegar ég hef fengið meira en nóg, tek ég ef til vill rútuna í bæinn.

animal jpeg
You are Animal.
You are completely nuts, but fun to be around.

SPECIAL TALENTS:
Drums, Women, Food.

HOBBIES:
Drums, Women, Food.

FAVORITE EXPRESSIONS:
"Louder!", "Food now!" and
"Want Woman!"

LAST BOOK EATEN:
"The Musicians' Guide to Drums, Women &
Food"

NEVER LEAVES HOME WITHOUT:
An appetite.


What Muppet are you?
brought to you by Quizilla

Nú er Mogginn kominn, og mamma að fara í vinnuna. Jæja Sigrún.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 04:40



17.5.04
Enga helvítis tilslökun...

...allt eða ekkert, heimsyfirráð eða dauði. Hvernig sem grátið verður og ælt - ég veit alveg hvernig ég á að vera. Svo sannarlega.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 00:53



11.5.04
Tvisvar sinnum tveir eru fjórir...

... Makarías var erkibiskup á Kýpur. Ég er búin að vera í bolnum mínum öfugum í allan dag.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 21:14



4.5.04
Kömm og klám og einhver viðbjóður

Já hæ, mig langaði bara að ráða öllum sem kynnu að lesa þetta frá því að geyma mozzarella-ost í ísskápnum sínum í tvo mánuði frá síðasta söludegi. Og þetta segi ég ekki að tilefnislausu, raunin er sú að ég hef farið frekar illa út úr þessu. Í sakleysi mínu var ég rótandi í ísskápnum, leitandi að einhverju ætilegu til að hafa með í nesti, því samviskusama námsmeyin sem ég er ætlaði nefnilega út á Íþöku að læra. Þá rak ég augun í mjög grunsamlega hvíta dós. Samkvæmt umbúðunum var þetta mozzarellaostur, og það enginn venjulegur mozzarellaostur, heldur mozzarellaostur sem rann út 5. mars. Þetta fannst mér einhverra hluta vegna óstjórnlega fyndið og æpti þessa vegna á móður mína, í þeim tilgangi að mana hana til að opna dósina. Hún kom hlaupandi en þegar hún sá hvernig var fyrir ostinum komið neitaði hún að opna dósina. Þá gerðust hendurnar á mér sleipar og ég missti dósina í gólfið. Til allrar óhamingju var lokið eitthvað illa fest á og osturinn fór í gólfið ásamt öllum vökvanum sem áður umlukti hann. Þá kom í ljós það sem mig hafði grunað, að það var ekki allt með felldu ofan í dósinni. Nú spyrjiði kannski: "Jájá, var hann svona myglaður? Var hann svona úldinn? Eða var hann farinn að súrna svona illilega?" En svarið er ekkert að ofangreindu. Nei, osturinn góði var kominn framhjá öllum þessum tilverustigum og var staddur á lífsskeiði sem ég kann ekki að nefna, en einkennist af lykt sem líkist samblandi af ælu og ungbarnasaur. Að öllum ýkjum slepptum man ég ekki eftir því að hafa nokkurn tímann fundið verri lykt. Nú, þegar ég hafði áttað mig á aðstæðum; ég stóð í miðjum polli af gulum vökva sem lyktaði eins og mannaúrgangur og var mjög líklega geislavirkur - gólaði ég hátt og mikið, og þetta var ekkert sérstaklega sjarmerandi gól, enda flúði móðir mín af vettvangi og eftirlét mér skúringarnar. Aftur sleppi ég öllum ýkjum þegar ég segi að þrifin á þessari viðurstyggð voru ömurlegasta skítverk sem ég hef innt af hendi í lengri tíma. Klósettþrif eru til dæmis hreinasta hátíð miðað við þetta. Nei, ég ætla að umorða þetta aðeins: ef einhver tæki nú upp á því að nauðga mér aðeins í nasirnar, væri það miklum mun ánægjulegra heldur en að missa niður á sig og upp um alla veggi svona... viðbjóð.
Nú ætla ég að fara að lesa sögubókina sem ég er búin að týna.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 13:12



3.5.04
Kommaskrípó

Á laugardaginn fagnaði ég verkalýðsdeginum með því að fara með Hildi í Menningarmiðstöð Íslands og Ráðsstjórnarríkjanna. Þar borðaði ég of mikið. Svo horfði ég á rússneskar teiknimyndir; kommaskrípó. Kommaskrípó er klárlega orð helgarinnar.

Síðustu tvær vikurnar hefur æðsta ósk mín verið að eyða afgangi ævi minnar í að borða kókópöffs og strumpaópal og horfa á Simpsons. Og alls ekkert annað. Jú kannski smá fíflamjólk út á kókópöffsið.

Mér er illt í hálsinum. Meirihlutinn af æðunum í augunum á mér eru sprunginn.

|
sigrún ybbaði gogg klukkan 21:50

maystar maystar maystar designs | maystar designs |